Dagana 23. til 25. febrúar verður félagið með lengri opnun á skrifstofum sínum í Fjallabyggð, á Dalvík og á Akureyri. Starfsfólk félagsins ásamt fulltrúum frá Virk verða á staðnum milli kl. 15:00 og 19:00 þessa daga.
Hvar og hvenær:
Láttu sjá þig!
Kíktu í kaffi og kleinur og hittu formann, varaformann og annað starfsfólk félagsins ásamt fulltrúum frá Virk. Við verðum á svæðinu til að svara þeim spurningum sem á ykkur brenna gagnvart félaginu og Virk starfsendurhæfingarsjóði.
Sjáumst sem flest, með bestu kveðju.
Starfsfólk Einingar-Iðju