Lengri opnun á Dalvík í dag

Í dag verður lengri opnun á skrifstofu félagsins á Dalvík en opið verður til kl. 19:00. Milli kl. 15:00 og 19:00 verða líka á svæðinu formaður félagsins og varaformaður ásamt fleira starfsfólki frá Akureyri, fulltrúar frá Virk og pólskur túlkur.

Dagana 23. til 25. febrúar verður félagið með lengri opnun á skrifstofum sínum í Fjallabyggð, á Dalvík og á Akureyri. Formaður félagsins, varaformaður ásamt fleira starfsfólki frá Akureyri, fulltrúar frá Virk og pólskur túlkur verða á staðnum milli kl. 15:00 og 19:00 þessa daga.

Hvar og hvenær:

  • í Fjallabyggð þriðjudaginn 23. febrúar
  • á Dalvík miðvikudaginn 24. febrúar
  • á Akureyri fimmtudaginn 25. febrúar 

Láttu sjá þig!

Kíktu í kaffi og kleinur og hittu formann, varaformann og annað starfsfólk félagsins ásamt fulltrúum frá Virk. Við verðum á svæðinu til að svara þeim spurningum sem á ykkur brenna gagnvart félaginu og Virk starfsendurhæfingarsjóði.

Sjáumst sem flest, með bestu kveðju.
Starfsfólk Einingar-Iðju