Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Sex í sveit sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Sýningin verður laugardaginn 3. mars og hefst kl. 15:30. 

Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 13:30 því áður en sýnining hefst verður boðið upp á kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla.

Boðið verður upp á akstur frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík.

Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)