Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Góðverkin kalla sem sýnt er í Freyvangsleikhúsinu.
Sýning verður laugardaginn 1. apríl nk. og verður lagt af stað í rútu frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:00.
Áður en sýningin hefst verður boðið upp á kaffiveitingar.
Boðið verður upp á bílferðir frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík.
Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða. Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)