Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Með vífið í lúkunum sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Sýningin verður laugardaginn 5. mars og hefst kl. 15:30.
Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 13:30 því áður en sýnining hefst verður boðið upp á kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla.
Boðið verður upp á bílferðir frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Grenivík
Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)