Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Í gær fóru félagsmenn sem eru lífeyrisþegar í boði félagsins á leikritið Verksmiðjukrónikuna sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Rúmlega 100 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýninguna sem var hin besta skemmtun. „Vel að verki staðið,“ eins og einn leikhúsgesturinn orðaði það.

Tilboð til Einingar-Iðjufélaga
Vert er að minna á að á aðrar sýningar fá allir félagsmenn miðann á kr. 2.500 í stað kr. 3.000. Munið að láta vita að þið séuð félagsmenn þegar miðinn er keyptur.