Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Verksmiðjukrónikuna sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Sýningin verður fimmtudaginn 13. nóvember nk. og hefst kl. 20:00.

Boðið verður upp á rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 19:15. Einnig verður boðið upp á bílferðir frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Grenivík

Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)

Tilboð til Einingar-Iðjufélaga
Á aðrar sýningar fá allir félagsmenn miðann á kr. 2.500 í stað kr. 3.000. Munið að láta vita að þið séuð félagsmenn þegar miðinn er keyptur.