Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Í gær, á sumardaginn fyrsta, bauð Eining-Iðja félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Fullkomið brúðkaup sem Leikfélag Dalvíkur sýnir um þessar mundir. Á undan sýningu var boðið upp á kaffiveitingar í Menningarhúsinu Bergi. Hátt í 100 félagsmenn þáðu boðið og skelltu sér í kaffi og á skemmtilega leiksýningu.

Fleiri myndir má finna hér.