Vert er að minna á að enn eru nokkur sæti laus! Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Dagbók Önnu Frank sem verið er að sýna í Freyvangsleikhúsinu.
- Sýningin verður laugardaginn 7. mars og hefst kl. 15:00.
- Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:30
- Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi
- Akstur í boði frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík
- Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða
- Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600 (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)