Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Gauragang sem Leikfélag Hörgdæla er að sýna á Melum í Hörgárdal. Leikritið er eftir Ólaf Hauk Símonarson og er í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar.
Ormur Óðinsson er 16 ára snillingur og töffari og rétt að klára grunnskólann. Vinir, hugsjónir, fjölskylda, skoðanir, ljóð, óvinir, skóli og ást flækjast saman í tvísýnu spili um hug hans og hjarta. Gauragangur er drepfyndin og háalvarleg þroskasaga einnar skemmtilegustu andhetju Íslands.
Sýningin verður fimmtudaginn 12. desember 2019.
Sýningin hefst kl. 20:00 - Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 19:15
Boðið verður upp á akstur frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík
Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða
Skráning fer fram á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)