Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Brúðkaup sem Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar í Reykjadal sýnir í Breiðamýri. Um er að ræða gamanleikrit með söngvum og gríni. Sýningin verður laugardaginn 16. mars nk. 

Á sýningunni verður boðið upp á kaffi og meðlæti sem Kvenfélag Reykdæla sér um 

Sýningin hefst kl. 16:00 - Rútuferð frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:30 

Boðið verður upp á akstur frá Fjallabyggð, Dalvík og Grenivík 

Athugið! Um takmarkað sætaframboð er að ræða 

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst á skrifstofum félagsins eða í síma 460 3600. (Takið fram ef þið eruð utan Akureyrar, upp á bílfar að gera)