Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Laugardaginn 3. mars sl. fóru félagsmenn sem eru lífeyrisþegar í boði félagsins á leikritið Sex í sveit  sem Leikfélag Hörgdæla sýnir á Melum í Hörgárdal. Rúmlega 100 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér í kaffihlaðborð í Þelamerkuskóla og á sýninguna sem var hin besta skemmtun.