Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega félagsins

Um síðustu helgi bauð Eining-Iðja félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Dagatalsdömurnar sem Freyvangsleikhúsið sýnir í Freyvangi. Á undan sýningu var boðið upp á kaffiveitingar á Öngulstöðum. Um 120 félagsmenn þáðu boðið og skelltu sér í kaffi og á skemmtilega leiksýningu.

Fleiri myndir úr ferðinni má finna hér.