Mikil eftirspurn er eftir menntuðum leiðsögumönnum í kjölfar fjölgunar ferðamanna til landsins. Vert er að vekja athygliu á að Símenntun Háskólans á Akureyri vill leggja sitt að mörkum til að bregðast við því og býður leiðsögunám, í samstarfi við Leiðsöguskólann í MK, Samtök ferðþjónustunnar og SBA-Norðurleið, veturinn 2013-2014.
Leiðsögunámið er víðfeðmt og fjölbreytt. Fjallað er um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi og íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni.
Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærilegt nám og þurfa nemendur að standast munnlegt inntökupróf, sem haldið verður í byrjun júní, á því tungumáli sem þeir hyggjast leiðsegja á.
Kennt verður þrjú kvöld í viku auk þess verða farnar vettvangs- og æfingaferðir.
Umsóknafrestur er til 31. maí sjá nánar á www.simenntunha.is.