Leiðbeiningar stýrihóps vegna meginreglna hvíldartímalöggjafar

Þessi frétt eða fróðleikur er af kynningarvefnum betrivinnutimi.is þar sem farið er yfir mögulegar útfærslur á styttingu vinnutíma dagvinnufólks og þær breytingar sem verða á vinnufyrirkomulagi vaktavinnufólks hjá ríki og sveitarfélögum. 

Stýrihópur betri vinnutíma í vaktavinnu hefur gefið út leiðbeiningar um meginreglur hvíldartíma. 

Markmið

Markmið með leiðbeiningunum er að ítreka gildandi reglur um að tryggja skuli hverjum starfsmanni daglegan hvíldartíma samfellt í 11 klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.

Reglurnar kveða á um lágmarkshvíldartíma starfsmanna með það að markmiði að tryggja öryggi og heilsu þeirra.

Inntak leiðbeininganna er m.a.:

  • Stjórnandi ber ábyrgð á því að skipuleggja vinnutíma þannig að hvíldartímareglur séu virtar og gæta þess að frávik frá meginreglunni um lágmarkshvíldartíma verði eingöngu í undantekningartilvikum.
  • Starfsmenn óski ekki eftir vöktum sem leiða til brota á hvíldartímareglum.
  • Við skipulag vinnutíma þarf fyrst að huga að þörfum starfseminnar, þar á eftir að jafnræðis sé gætt í starfsmannahópnum m.t.t. vaktahvata og vægi vinnuskyldustunda og þar á eftir til þarfa einstakra starfsmanna.
  • Með hliðsjón af gildandi lögum og leiðarljósum betri vinnutíma í vaktavinnu um öryggi og heilsu leggur stýrihópur áherslu á að vaktir verði skipulagðar með hliðsjón af meginreglunni um 11 klukkustunda daglega lágmarkshvíld og einungis verði vikið frá þeirri meginreglu þegar nauðsyn krefur.
  • Þegar betri vinnutími í vaktavinnu tekur gildi og vinnuvika vaktavinnustarfsfólks í fullu starfi styttist úr 40 klukkustundum í 36 á viku skapast svigrúm til að skipuleggja vaktir innan þess ramma sem hvíldartímareglur setja.

Þegar samið var um betri vinnutíma í vaktavinnu voru samningsaðilar sammála um að draga úr notkun frávika frá daglegri lágmarkshvíld eins mikið og kostur er. Sérstaklega þarf að huga að því að breyta venjum sem ganga gegn leiðarljósum betri vinnutíma. 

Hér má sjá frekara efni: