Laust í Fjallaferðina

Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar

Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í Fjallaferð félagsins dagana 18. til 21. júní nk. Áhugasamir geta haft samband við skrifstofu félagsins á Akureyri. 

Ekið verður eins og leið liggur um Kjöl suður undir Eyafjöll (ef ekki verður fært um Kjöl verður hefðbundin leið farin) og gist í þrjár nætur í Félagsheimilinu Heimalandi. Á degi tvö verður Herjólfur tekinn í Landeyjarhöfn og farið með honum til Vestmannaeyja, þar sem farið verður um og farið í siglingu ef veður leyfir. Á þriðja degi verður farið í Þórsmörk. Á fjórða degi verður ekið heim um þjóðveg 1 heim til Akureyrar.

Hér má lesa nánar um ferðina