Laust á Illugastöðum um helgina

Vert er að benda félagsmönnum á að enn eru nokkur orlofshús félagsins á Illugastöðum laus um næstu helgi. Helgarleiga er þrjár nætur, frá fimmtudegi til sunnudags, eða frá föstudegi til mánudags. 

Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta bústað.