Vert er að benda á að það er laust í nokkrum bústöðum um helgina á Illugastöðum í Fnjóskadal og á Einarsstöðum í Héraði. Einnig er enn laust á þessum stöðum næstu helgar í maí.
Er ekki upplagt að skella sér í annað umhverfi og gera sér dagamun?
Auðveldast er að fara inn á Orlofshúsavef félagsins þar sem hægt að panta og ganga frá greiðslu.
Einnig er hægt að hringja í félagið í síma 460 3600.