Laus orlofshús

Vert er að benda á að enn eru nokkrar lausar vikur í orlofshúsum félagsins í sumar og haust. Nú gildir fyrstur pantar/fyrstur fær. Hægt er að hringja í félagið í síma 460 3600, senda tölvupóst á ein@ein.is eða bara líta við á skrifstofur félagsins, á Akureyri, Dalvík eða í Fjallabyggð.

Best er þó að fara inn á félagavefinn og skoða hvað er laust. Þar er einnig hægt að panta og ganga frá greiðslu.