Laus orlofshús

Vert er að benda á að enn eru nokkrar lausar vikur í orlofshúsum félagsins. Allar eru þær í lok sumarúthlutunartímabilsins, fyrir utan tvær vikur á Egilsstöðum en þar eru lausar vikurnar 2. til 9. ágúst og 9. til 16. ágúst. Nú gildir fyrstir panta/fyrstir fá.

Hægt er að hringja í félagið í síma 460 3600, senda tölvupóst eða bara líta við. Best er þó að fara inn á félagavefinn og skoða hvað er laust. Þar er einnig hægt að panta og ganga frá greiðslu.

Eins og staðan er í dag þá eru þessar vikur lausar á eftirfarandi stöðum: (Athugið listinn getur verið fljótur að breytast og vegna sumarfrís verður honum ekki breytt næstu daga)

Reykjavík

  • 21. ágúst til 28. ágúst
  • 28. ágúst til 4. september
  • 4. september til 11. september

2. ágúst til 9. ágúst

  • Egilsstaðir

9. ágúst til 16. ágúst

  • Egilsstaðir

23. ágúst til 30. ágúst

  • Illugastaðir
  • Klifabotn í Lóni
  • Brekkuskógur
  • Einarsstaðir
  • Egilsstaðir

30. ágúst til 6. september

  • Illugastaðir
  • Einarsstaðir
  • Egilsstaðir
  • Svignaskarð

6. september til 13. september

  • Illugastaðir
  • Einarsstaðir
  • Egilsstaðir
  • Flókalundur í Vatnsfirði
  • Svignaskarð