Launahækkanir á árinu 2018

Eining-Iðja tekur undir hvatningu Starfsgreinasambandsins og hvetur launafólk til að fylgjast vel með hvort fyrirhugaðar launahækkanir skili sér rétt og örugglega í launaumslagið það sem eftir lifir ársins 2018, en þá hækka laun og launatengdir liðir skv. núgildandi kjarasamningum sem hér segir:

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði:

  • Þann 1. maí hækka laun og launatengdir liðir um 3%.
  • Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. maí 2018.
  • Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
  • Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar í 11,5% 1. júlí 2018.
  • Starfsmenn fá 89.000 kr. í desemberuppbót ekki síðar en 15. desember, miðað við fullt starf. 

Starfsfólk sveitarfélaga:

  • Þann 1. júní hækka laun um 2%.
  • Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 4 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. júní 2018.
  • Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. maí, miðað við fullt starf.
  • Starfsmenn fá 113.000 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.

Starfsfólk ríkisins:

  • Þann 1. júní hækka laun um 3%.
  • Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 4 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. júní 2018.
  • Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
  • Starfsmenn fá 89.000 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.

Starfsgreinasambandið hefur útbúið kynningarefni vegna fyrirhugaðra launahækkana, en þar er greint frá launahækkunum, hækkunum á orlofs- og desemberuppbótum og hækkunum á mótframlagi í lífeyrissjóði.

Kynningarefnið er aðgengilegt á íslensku, ensku og pólsku.

Launahækkanir á árinu 2018 (PDF)
Wage increases in 2018 (PDF)
Podwyżki wynagrodzenia w 2018 roku (PDF)