Laun félagsmanna í aðildarfélögum SGS sem starfa hjá ríkinu munu hækka um að 0,5 prósent frá síðustu áramótum (1. janúar 2018) vegna samkomulags um að launaþróun opinberra starfsmanna verði ekki lakari en á almennum vinnumarkaði. Reglulega er skoðað hvort bæta þurfi opinberu starfsfólki upp launaþróun á almennum markaði og þetta var niðurstaðan að þessu sinni. Áður höfðu laun þessa hóps hækkað um að meðaltali 1,8% afturvirkt frá 1. janúar 2017, á grundvelli samkomulagsins.
SGS hefur nú leiðrétt áðurútgefna kauptaxta þar sem launataflan hefur verið uppfærð með tilliti til umræddrar hækkunnar. Kauptaxtana má nálgast hér.