Opið verður á skrifstofum Einingar-Iðju næsta laugardag á milli kl. 11 og 14 fyrir þá félagsmenn sem þurfa að komast í tölvu eða vantar aðstoð við að greiða atkvæði um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir.
Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en hefur ekki fengið send gögn er hægt að kæra sig inn. Viðkomandi þarf að hafa samband við Sigrúnu Lárusdóttir á skrifstofu félagsins á Akureyri.
Kæru félagar takið afstöðu með því að kjósa um verkfallsboðun. Launafólk í landinu þarf á ykkar kröftum að halda.