Láttu í þér heyra!

Námskeiðið fer fram í sal félagsins á Akureyri
Námskeiðið fer fram í sal félagsins á Akureyri

Hefur þú áhuga á að tileinka þér aðferðir sem auðvelda þér að standa upp og tala frammi fyrir hópi fólks? Þá er þetta námskeiðið fyrir þig!

Eining-Iðja býður félagsmönnum á námskeiðið Láttu í þér heyra! þriðjudaginn 29. maí í Einingar-Iðju salnum, Skipagötu 14, 2. hæð. 

Helstu námskeiðsþættir eru:

  • Árangursríkari tjáning
  • Bætt hæfni í mannlegum samskiptum
  • Aukin færni í félagsstarfi
  • Aðferðir til sjálfstyrkingar 

Námskeiðið hefst kl. 17:00 og lýkur kl. 21:00.

Léttar veitingar eru í boði kl. 19:00. 

Kennari á námskeiðinu er Bragi V. Bergmann, FREMRI Almannatengslum. 

Skráning í síma 460 3600. 

Námskeiðið er einungis fyrir félagsmenn Einingar-Iðju og þeim að kostnaðarlausu.