Lagt af stað í ferð

Fyrr í morgun lögðu tæplega 40 félagsmenn af stað í árlega innanlandsferð Einingar-Iðju, en hún stendur yfir dagana 11. til 14. ágúst. Í dag verður ekið eins og leið liggur austur á Egilsstaði með ýmsum útúrdúrum. Gist verður í sumarhúsum á Skipalæk í þrjár nætur. Á öðrum degi verður farið í Loðmundarfjörð, á þriðja degi í Mjóafjörð og á fjórða degi verður farið heim í gegnum Vopnafjörð og nýja veginn um Sléttu til Akureyrar.