Flestir starfsmenn félagsins eru að fara í frí og því verður starfsemi skrifstofunnar á Akureyri í lágmarki dagana 9. til og með 14. október nk.
Aðeins tveir starfsmenn verða við vinnu á Akureyri þessa daga, annar verður í móttökunni og hinn starfar sem VIRK ráðgjafi. Starfsmennirnir munu gera sitt besta til að þjóna félagsmönnum og öðrum þeim sem leita eftir aðstoð.
Skrifstofurnar í Fjallabyggð og á Dalvík verða opnar á hefðbundnum tíma.