Lágmarksþjónusta á Akureyri, lokað á Dalvík og í Fjallabyggð

Flestir starfsmenn félagsins eru að fara í stutt frí og því verður lokað á skrifstofum félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð í þrjá daga í nóvember, fimmtudaginn 24., föstudaginn 25. og mánudaginn 28. Þessa sömu daga verður starfsemi skrifstofunnar á Akureyri í lágmarki því aðeins tveir starfsmenn verða þar við vinnu. Starfsmennirnir munu gera sitt besta til að þjóna félagsmönnum og öðrum þeim sem leita eftir aðstoð.