Kynningarfundur um Áttina.is

Opnuð hefur verið sérstök vefgátt www.attin.is sem ætlað er að auðvelda fyrirtækjum sem greiða iðgjald í starfsmenntasjóði/-setur að sækja um styrki til námskeiðahalds fyrir starfsmenn sína. Einnig geta fyrirtæki fengið fræðslustjóra að láni inn í fyrirtækið og styrki til eigin fræðslu. Þannig þurfa fyrirtæki sem greiða starfsmenntagjald
vegna starfsmanna sinna í sjóðina aðeins að sækja um styrki á einum stað, í stað margra áður.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, SA, Halldór Grönvold, ASÍ og Sveinn Aðalsteinsson, verkefnisstjóri Áttarinnar
munu kynna síðuna á kynningarfundum og möguleika fyrirtækja á styrkjum til fræðslu. Á morgun, þriðjudaginn 12. janúar verður kynningarfundur á Hótel KEA milli kl. 17:00 og 18:30.

Auðveldari leið fyrir fyrirtæki til að sækja um styrki til starfsmenntunar
Áttin – ný vefgátt, sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntasjóðum og fræðslustofnunum, er sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði.

Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa lengi óskað eftir einfaldara kerfi og greiðari leið fyrir þau til að sækja í fræðslu- og starfsmenntasjóði. Þau fyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og greitt er af í mismunandi stéttarfélög, hafa hingað til þurft að sækja til margra sjóða og fræðslustofnana um styrki. Héðan í frá eiga þau að geta sótt um styrki fyrir nær allt sitt fólk með aðeins einni umsókn.

Sjóðirnir sem standa að Áttinni eru IÐAN fræðslusetur, Landsmennt, Menntasjóður Verkstjórasambandsins og SA, Rafiðnaðarskólinn, Starfsafl, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og Starfsmenntasjóður verslunarinnar. Ætla má að sjóðirnir nái til um 110-120 þúsund starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum eða um 75-80% starfsmanna á þeim vinnumarkaði.

Áttin er sífellt í þróun. Fyrirtæki eru hvött til að kynna sér Áttina og senda ábendingar til Sveins Aðalsteinssonar verkefnisstjóra Áttinnar (sveinn@attin.is) sem jafnframt er fyrirtækjum til aðstoðar við fjármögnun fræðslu í fyrirtækjum.

Það er von þeirra sem standa að ÁTTINNI að nýja vefgáttin og þeir möguleikar sem hún gefur verði til að auka skilning og
vitund fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra á mikilvægi öflugrar starfsmenntunar og færnisuppbyggingar til að treysta stöðu fyrirtækjanna og bæta hag þeirra sem hjá þeim starfa.