Kynningarfundur í kvöld um nýjan samning við ríkið

Félagið minnir á tvo kynningarfundi um nýjan samning milli SGS og ríkisins sem skrifað var undir þann 1. apríl sl. Fyrri fundurinn verður á Akureyri í kvöld og Fjallabyggð á morgun.

 

Akureyri: Mánudagur 7. apríl kl. 20:00 í sal félagsins Skipagötu 14 2. hæð

Siglufjörður: Þriðjudagur 8. apríl kl. 20:00 á skrifstofu félagsins, Eyrargötu 24b


Félagar sem starfa hjá ríkinu eru hvattir til að mæta og kynna sér nýja kjarasamninginn áður en atkvæðagreiðsla um hann fer fram.