Nú stendur yfir kynningarfundur á hótel KEA á nýju ræstingakerfi sem mun taka gildi í síðasti lagi í febrúar 2014. Anna Júlíusdóttir, varaformaður félagsins, er að kynna nýja kerfið fyrir félagsmönnum sem starfa við ræstingar. Annar fundur verður á sama stað kl. 20 í kvöld. Fundirnir eru báðir túlkaðir á ensku og pólsku.
Mikilvægt er fyrir þá sem málið varðar að kynna sér þær breytingar sem verða og hvetur félagið þá sem ekki komust á fundinn sem hófst kl. 16 að mæta kl. 20.