Kynningarfundir um nýjan samning

Á næstunni mun félagið halda nokkra kynningarfundi á nýjum kjarasamningi Einingar-Iðju við SA. Miðvikudaginn 26. febrúar verður fundur kl. 20:00 í Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b Siglufirði.

Sunnudaginn 2. mars verður fundur kl. 15 í félagsheimilinu í Grímsey

Mánudaginn 3. mars verður fundur kl. 17 í Mímisbrunni á Dalvík og kl. 20 á Hótel KEA á Akureyri.

Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

Félagar, fjölmennum!