Starfsmenn félagsins fóru í vikunni í fyrstu skólaheimsóknirnar í Verkmenntaskólann á Akureyri í vetur, þar sem verið er að kynna réttindi og skyldur á vinnumarkaði fyrir yngstu nemendur skólans. Síðastliðinn þriðjudag fóru fram tvær kynningar og tvær í morgun. Alls verða kynningarnar 11 , en hver heimsókn stendur yfir í tvær kennslustundir.
Í þessum kynningum er m.a. farið yfir gildi þess að vera í stéttarfélögum og eins er farið yfir almenn réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Undirtektir unglinganna eru oftast nær mjög góðar og skapast oft góðar umræður um þessi mál. Undanfarin 20 ár hafa starfsmenn félagsins einnig farið í alla 10. bekki á Eyjafjarðarsvæðinu með fræðslu sem þessa og annað slagið í Menntaskólann á Akureyri.
Starfsmenn félagsins hafa tekið eftir mikilli breytingu til batnaðar í sambandi við hvað unga fólkið er orðið virkara hvað þessi mál snertir nú en fyrir nokkum árum síðan. Það veit betur hvar það á að spyrjast fyrir um réttindi sín og eins vita þau mun betur en áður hverju þau eiga rétt á. Þegar ungmenni fara út á vinnumarkaðinn þá skiptir miklu máli að þekkja og vita um réttindi sín og þessar kynningar eru hluti af því.