Í gær hélt félagið fund þar sem trúnaðarmenn félagsins sem starfa hjá sveitarfélögunum fengu kynningu á nýjum kjarasamningi sem skrifað var undir sl. föstudag.
Atkvæðagreiðsla um nýja samninginn hefst þriðjudaginn 1. desember nk. og mun ljúka á miðnætti 8. desember nk. Starfsgreinasambandið sér um atkvæðagreiðsluna. Allir félagsmenn Einingar-Iðju sem greiddu félagsgjöld í október og starfa hjá sveitarfélagi, alls tæplega þúsund manns, fá sendan kynningarbækling og leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna. Bæklingurinn mun fara í póst næsta föstudag og berast inn um lúgu félagsmanna fljótlega eftir helgi. Ef einhver fær ekki send gögn frá SGS, en starfa hjá sveitarfélagi og ferðu það í október, hafið þá samband við félagið.
Fjórir kynningarfundir
Á morgun verða tveir kynningarfundir á nýja samningnum fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum, í Fjallabyggð og á Dalvík. Næsta fimmtudag verður fundur á Grenivík og næsta mánudag á Akureyri.
Miðvikudagur 25. nóvember
Fimmtudagur 26. nóvember
Mánudagur 30. nóvember
Dagskrá:
1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
2. Önnur mál.
Sýnum ábyrga afstöðu!
Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.