Kynning á nýjum samningi félagsins við SA

Mætið og kynnið ykkur samninginn!
Mætið og kynnið ykkur samninginn!

Í næstu viku, dagana 9. til 12. júní, mun félagið halda sex kynningarfundi á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. 

Þriðjudagur 9. júní

  • Hrísey, á veitingastaðnum Akkerinu kl. 17:00
  • Dalvík, í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00

Miðvikudagur 10. júní

  • Fjallabyggð, á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24 b á Siglufirði kl. 20:00

Fimmtudagur 11. júní

  • Grenivík, í Gamla skólanum kl. 17:00
  • Akureyri, í salnum á 4. hæð Skipagötu 14 kl. 20:00 

Föstudagur 12. júní

  • Grímsey, á veitingastaðnum Kríunni kl. 9:30 

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.