Kynning á nýjum beitningarsamningi

Kynningarfundur á nýjum kjarasamningi milli Starfsgreinasambands Íslands og Landssambands smábátaeigenda vegna starfsmanna sem vinna við uppstokkun eða beitningu í landi var haldinn á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð í vikunni. Góð mæting var á fundinn og urðu miklar og góðar umræður um samninginn og málefni þeirra félagsmanna sem starfa eftir honum. Fundurinn var túlkaður yfir á pólsku.

Hægt er lesa samninginn í heild sinni hér.