Sjáumst á morgun á Ráðhustorginu á Akureyri og í Ungó á Dalvík - hér fyrir neðan má sjá brot af þeim kröfuspjöldum sem gerð hafa verið - endilega komið með ykkar!
Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:55.
Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufundi sem fram fara víða um land.
Á Akureyri verður samstöðufundur á Ráðhústorgi kl. 15:15
Á Dalvík verður samstöðufundur í Ungó kl. 15:15
Hægt er að fá frekar upplýsingar um Kvennafrí á heimasíðunni: www.kvennafri.is