Kröfugerð mótuð - mikil samstaða

Eins og fram komka á heimasíðunni í gær þá hittist samninganefnd SGS í gær til að móta kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga. Fundurinn, sem fór fram í Karphúsinu, stóð lengi yfir og eftir góðar umræður samþykkti nefndin samhljóða sameiginlega kröfugerð sem afhent verður Samtökum atvinnulífsins næstkomandi mánudag. Mikill hugur var í fundarmönnum og samstaðan ríkjandi.