Kraftur í styrkveitingum Landsmenntar

Á fyrri hluta ársins hefur verið kröftugur gangur í styrkveitingum Landsmenntar til fyrirtækja og einstaklinga en á sama tíma hefur verið dregið úr rekstrarkostnaði sjóðsins.

Það sem af er árinu (miðað við sept.) hefur Landsmennt greitt styrki til einstaklinga að upphæð kr. 141.537.051,- og styrki til fyrirtækja og annara verkefna þeim tengdum að upphæð kr. 45.198.314,-. Á bak við þessar styrkveitingar eru samtals um 3300 félagsmenn innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS) á landsbyggðinni.

Vegna Covid-19 setti var sett af stað fræðsluátak um miðjan mars 2020 og reglum sjóðsins breytt tímabundið. Endurgreiðsluhlutfall til fyrirtækja og einstaklinga var hækkað úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Gildistíminn var  frá 15. mars 2020 og verður til og með 31. des. 2021. Nánar um fræðsluátakið má sjá hér, en samningum vegna þess lauk 1. júní sl.

Nánari upplýsingar um Landsmennt má finna hér