Könnunin - búið að draga!

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Búið er að draga og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna dregin út. 

1. vinningur, kr. 100.000, Rakel Anfinnsdóttir Heinesen (Eining-Iðja)

2. vinningur, kr. 50.000, Ingunn Jónsdóttir (AFL)

3. – 6. vinningur, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna á árinu 2017, Sigurður Helgason (AFL), Þorvaldur Hreinsson (Eining-Iðja), Kári Sigmar Gunnlaugsson (AFL) og Jóna Sigurgeirsdóttir (Eining-Iðja)

Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju.