Könnunin - búið að draga!

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga. Í bréfinu sem þátttakendur fengu var lukkunúmer. Búið er að draga og voru nöfn eftirfarandi félagsmanna dregin út. 

1. vinningur, kr. 100.000, Hermann Harðarson (Eining-Iðja)

2. vinningur, kr. 50.000, Arndís Bára Pétursdóttir (AFL)

3. – 6. vinningur, vikudvöl í orlofsíbúðum félaganna á árinu 2016, Zoe Christi Ann Moulder (AFL), Ragnar Már Sigfússon (Eining-Iðja), Einar Jóhannesson (AFL) og Margrét Rós Sigurðardóttir (Eining-Iðja) 

Í ár lentu einnig 10 þátttakendur lentu strax í happdrættispotti. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um er að ræða kr. 10.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. 

Eining-Iðja óskar vinningshöfum til hamingju.