Könnun vegna kröfugerðar

Nú stendur yfir könnun á meðal félagsmanna um hvað beri að leggja áherslu á við gerð næstu kjarasamninga. Könnunin verður framkvæmd á vinnustöðum af trúnaðarmönnum.

Ef ekki er trúnaðarmaður á vinnustaðnum þínum, eða ef þú hefur ekki fengið spurningalista, þá getur þú haft samband við skrifstofur félagsins.

Taktu virkan þátt í kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga!

Spurningalistinn er á íslensku, ensku og pólsku

Könnunin stendur yfir dagana 24. til 27. apríl