Könnun hjá Félagsliðum

Félag íslenskra félagsliða leitar til þeirra sem hafa lokið námi félagsliða og hefur óskað liðsinnis Einingar-Iðju til að koma á framfæri könnun um fjölda þeirra sem hafa lokið námi með útskrift.

Eftirfarandi er hvatning frá formanni FÍF

Kæri félagsliði,

Félag Íslenskra félagsliða er að gera könnun. Nú þurfum við að fá að vita hvað margir útskrifaðir félagsliðar eru á landinu og hvað margir eru starfandi í faginu.

Einnig viljum við í félaginu senda út fréttabréf á rafrænan hátt til allra félgasliða á Íslandi.

Með þinni hjálp með að fylla út formið í tenglinum hér fyrir neðan, hjálpar þú okkur gríðarlega mikið.

Við biðjum þig að smella á þennan tengil og svara könnuninni.

Baráttukveðjur,
F.h. Félags íslenskra félagsliða
Sigurbjörg Sara Róbertsdóttir, formaður FÍF