Klukk - tímaskráningar app

Vert er að minna aftur á Klukk, sem er ókeypis tímaskráningar app fyrir Android/iOS og er ætlað launafólki. Notandi skráir vinnutímana sína með Klukk og hefur þannig yfirsýn yfir unnar vinnustundir. Í klukk er hægt að virkja staðsetningarbúnað sem minnir notandann á að klukka sig inn og út. Einnig er hægt að senda sér tímaskráningarskýrslu úr Klukk á netfang viðkomandi. Frekari upplýsingar um Klukk má finna hér.

Klukk er sótt í App store og Play store. Hlekkirnir eru hér ef þú átt eftir að sækja Klukk.

Apple - Iphone 

Google - Android