KLUKK nú einnig fáanlegt á ensku og pólsku

Tímaskráningarappið Klukk er nú einnig fáanlegt á ensku og pólsku. Nýjasta útgáfan af Klukki uppfærist sjálfkrafa í símanum og er skipt um tungumál með því að fara í stillingar í appinu. Tilgangurinn með appinu er að hjálpa launafólki að halda utan um sínar vinnustundir. Þannig má á auðveldan hátt nálgast yfirlit yfir unna tíma í mánuði og bera saman við greiddar vinnustundir á launaseðli og ganga þannig úr skugga um að þú fáir rétt greitt frá þínum launagreiðanda. Í appinu getur þú klukkað þig inn og út, ásamt því að appið minnir þig á að klukka sig þegar þú kemur eða ferð af vinnustaðnum. Á einfaldan máta er jafnframt hægt að fá tímaskýrslu senda í tölvupósti sem excel-skjal.

Yfir 20 þúsund manns hafa sótt Klukk síðan appið fór í loftið í febrúar 2016 og reglulegir notendur eru um 2-3000. Vonast er til að sá fjöldi aukist með þessari nýjustu útgáfu enda ca. 15% starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði fólk af erlendu bergi brotið.

Klukk er fáanlegt í Appstore (iPhone) og Playstore (Android). Félagsmenn eru hvattir til að ná í appið og prófa.

Allar nánari upplýsingar um appið er að finna á heimasíðu ASÍ.