Kjörfundur dagana 4. og 5. mars

Á fundi samninganefndar í gær var samþykkt samhljóða að greidd verði atkvæði um nýjan samning milli félagsins og Samtaka atvinnulífsins á kjörfundi dagana 4. og 5. mars nk. Kjörfundur verður á sjö stöðum á félagssvæðinu, þ.e. Akureyri, Dalvíkurbyggð, Ólafsfirði, Siglufirði, Hrísey, Grenivík og Grímsey.

Jafnframt var samþykkt að talning muni fara fram 6. mars, en úrslit á að tilkynna Ríkissáttasemjara og Samtökum atvinnulífsins fyrir kl. 12:00 þann 7. mars nk.

Nú er í prentun kynningarbæklingur þar sem farið er yfir helstu atriði þessa nýja samnings og hvað þessar breytingar þýða fyrir félagsmenn ef hann verður samþykktur. Bæklingurinn sem er á íslensku, ensku og pólsku fer í póst í dag og á morgun.

Nánar um kjörfundi á hverjum stað dagana 4. og 5. mars:

  • Akureyri: Skrifstofa félagsins milli kl. 8 og 20
  • Dalvík: Skrifstofa félagsins milli kl. 9 og 17
  • Grenivík: Hjá Róbert svæðisfulltrúa milli kl. 9 og 17
  • Grímsey: Hjá Önnu Maríu Sigvaldadóttur milli kl. 9 og 17
  • Hrísey: Hjá Guðrúnu svæðisfulltrúa milli kl. 9 og 17
  • Ólafsfjörður: Skrifstofa Sjómannafélags Ólafsfjarðar milli kl. 9 og 17
  • Siglufjörður: Skrifstofa félagsins milli kl. 9 og 17
Hér má finna tvo kynningarbæklinga. Þessi kynnti samning sem skrifað var undir í desember, en þessi kynnir viðbót við þann samning. Í honum eru hærri orlofs- og desemberuppbætur og eingreiðsla vegna janúarmánaðr.