Niðurstaða forsendunefndar ASÍ og SA, sem fundaði í dag, vegna endurskoðunar kjarasamninga er að tvær af þremur forsendum standast en ein gerir það ekki. Sú snýst um launaþróun annarra hópa. Samninganefnd ASÍ hefur engu að síður, m.a. að undangengnum fundarhöldum í baklandi stéttarfélaganna, ákveðið að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi.
Forsendurnar sem voru til skoðunar eru þessar:
Ljóst er að liðir 1 og 3 standast skoðun en liður 2 er forsendubrestur eins og áður segir. Er það mat samninganefndar ASÍ að ákveðin verðmæti séu í núgildandi samningi (4,5% almenn launahækkun 1. maí og hækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð um1,5% 1. júlí) auk þess sem lítill áhugi er á því að almenni markaðurinn fari fyrstur í þeim kjaraviðræðum sem framundan eru, en mörg opinberu félaganna eru með lausa samninga síðar á þessu ári.
Ákvörðun um uppsögn er þó frestað fram til febrúar 2018 vegna þeirra fjölda kjarasamninga sem lausir eru á opinbera markaðnum á næstu mánuðum og óvissu um niðurstöðu þeirra. Ef tekin verður ákvörðun um uppsögn kjarasamninga í febrúar 2018 gildir uppsögnin strax, en ekki frá lok apríl eins og samningarnir kveða á um.