Kjarajafnrétti STRAX!

Baráttan fyrir afnámi kynbundins launamunar hefur staðið í meira en hálfa öld. Þokast hefur í rétta átt en ekki hefur tekist að uppræta kerfisbundna mismunum kynjanna á íslenskum vinnumarkaði. Niðurstöður nýrra kjararannsókna verkalýðshreyfingarinnar vitna um stöðu sem er óviðunandi. Enn mælist óútskýrður munur á launum karla og kvenna. Það þýðir að konur fá lægri laun fyrir sömu störf og karlar gegna vegna þess að þær eru konur. Munur á heildartekjum karla og kvenna hérlendis er enn meiri, eða tæplega 30%. Sá munur skýrist meðal annars af því að þau störf sem konur gegna að miklum meirihluta eru minna metin en starfsgreinar þar sem karlar eru í meirihluta. Þá gegna konur hlutastörfum í meiri mæli en karlar.

Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að í kjarasamningum er samið um sömu laun fyrir konur og karla. Ákvörðunin um að greiða konum lægir laun en karlar fyrir sambærileg störf er tekin í hverri viku á vinnustöðum um allt land. Árið 2016 eru konur minna metnar en karlar í atvinnulífinu. Við það verður ekki unað.

Í dag, 41 ári eftir að íslenskar konur vöktu heimsathygli með því að leggja niður störf og vekja rækilega athygli á vinnuframlagi kvenna, þarf enn að grípa til aðgerða og krefjast raunverulegra úrbóta á stöðu kvenna á vinnumarkaði. Þess vegna munu konur leggja niður störf í dag, mánudaginn 24. október kl. 14:38 og safnast saman á Austurvelli og víða um land. Aðgerðin eru skipulögð af samtökum kvenna og verkalýðshreyfingunni allri. Við hvetjum konur um allt land til að sýna samstöðu með hver annarri í dag kl. 14:38 og kröfunni um kjarajafnrétti STRAX!

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ)
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB
Þórður Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ)
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM)