Kíkt í Vaðlaheiðargöngin

Í gær fóru nokkrir stjórnarmenn í Iðnaðar- og tækjadeild Einingar-Iðju ásamt fulltrúum úr aðalstjórn félagsins í heimsókn í Vaðlaheiðargöngin. Með í för var Ásgrímur upplýsingafulltrúi félagsins og tók hann nokkrar myndir sem sjá má hér.

Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf., tók á móti hópnum, var með smá fræðslu um framkvæmdina og fór með þeim inn í göngin Fnjóskadalsmeginn. Nú er lokið um 83% af gangagreftrinum en hægt er að fylgjast með framvindunni hér.