Keðjuábyrgð verktaka hjá Akureyrarbæ

Samþykkt var með 11 samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar Akureyrar á þriðjudag, tillaga Ingibjargar Ólafar Isaksen um að í öllum samningum sem sveitarfélagið gerir um verklegar framkvæmdir verði skýrt kveðið á um keðjuábyrgð verktaka þegar kemur að því að tryggja kjarasamnings- og lögbundin réttindi allra starfsmanna sem að verki koma.

Þetta er frábært framtak hjá Akureyrarbæ og hvetur félagið önnur sveitarfélög á svæðinu að gera slíkt hið sama. Þetta er stórt skref sem stéttarfélög hafa lagt mikla áherslu á. Margt hefur verið gert til að reyna að koma í veg fyrir félagsleg undirboð, m.a. með því að efla vinnustaðaeftirlit. Þetta mun hjálpa mikið til við að borga ekki undir launatöxtum og það sem samningar segja til um.

Bókunin er svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir að í öllum samningum verklegra framkvæmda, kaupa á þjónustu og vörum á vegum sveitarfélagsins verði sett inn ákvæði um keðjuábyrgð þeirra seljenda sem sveitarfélagið semur við. Með þessu vill Akureyrarbær tryggja að allir starfsmenn, hvort sem það eru starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, njóti launa, trygginga og annarra réttinda í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Aðalverktakinn yrði í verksamningi, gerður ábyrgur fyrir að tryggja kjarasamnings- og lögbundin réttindi allra starfsmanna sem að verkinu koma. 

Þetta verður gert til að koma í veg fyrir undirboð og óeðlilega samkeppnishætti á vinnumarkaði.

Fundargerð bæjarstjórnar 1. nóvember 2016.