Kaupmáttur – atvinna – velferð

Alþýðusamband Íslands boðar til fundar í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri, þriðjudaginn 26. febrúar nk. kl. 18:30. Fundurinn er haldinn í samráði við stéttarfélögin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. Um er að ræða fyrsta fund af átta sem halda á um land allt á næstunni.

Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar (baráttu við verðbólguna), sókn í atvinnumálum á Norðurlandi og hugmyndir ASÍ að nýju húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd.

Félagið hvetur launafólk til að mæta á fundinn